Tók: Hvaða Ladda karekter er ég... og viti menn
Magnús Bóndi

Þú ert veruleikafirrtur bóndi sem býr á öræfum. Þú ert með greindarvísitölu á við viskustykki og þín helsta fæða er neftóbak.
Er að farast í skrokknum...


Þetta var sko einmitt það sem mig vantaði í ræktinni var farin að staðna soldið og orðin leið á sjálfri mér alltaf að gera það sama... fínt að fá vini sína í heimsókn sem kenna manni sitthvað nýtt.. ein besta jólagjöfin sem ég fékk, takk Luafey mín og Emil!!!
En svo lenti ég í því í morgun að þurfa að hlaupa út og leita að jólatrénu sem ég gróf ofan í jörðina, ekki nógu vel greinilega, veðrið gerði margar tilraunir til að rífa það upp og það tókst alveg, en við gátum alltaf sett það á sinn stað aftur.... nema í morgun, þá var það bara horfið, með seríu og öllu tilheyrandi ...EN ég fann það aftur, sem betur fer.. og í þetta skipti henti ég því undir tröppurnar... það kemur bara í ljós hvort það fari aftur í holuna sína þessi jólin ... efast um það!! veðrið er ekki alveg að bjóða upp á það að maður skreyti yfir skítinn í garðinum... Nenni ekki að vera eltandi það um allt þorp!!! Þvílíkt jólaveður, ojbara!
Jæja ætla að háma í mig restina af beinlausufuglunum sem voru í jólamatinn í gær hjá mömmu... áður en ég fer og háma í mig hangikjöt hjá pabba á eftir... lífið er ljúft, þarf ekkert að hafa fyrir þessu mæti bara í mat hjá mömmu á aðfangadag og hjá pabba á jóladag.... ætla að taka með mér gítarana til pabba og við ætlum að taka lagið saman við pápi... við stofnum kannski hljómsveit í kvöld... hver veit??? Pabbi er búin að vera svo duglegur að æfa sig á munnhörpuna

Gleðilega hátíð elzzzkurnar.
knús og kram/.
Gleðilega hátíð kæru vinir!
Kæru vinir og ættingjar við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
og þökkum fyrir allar yndislegar stundir á árinu.
Hittumst heil á nýju ári..
Bestu jólakveðjur
Guðrún Snæbjörg, Steini, Jóhanna Jörgensen og Lísbet Óla.
Uppáhalds jólakakan
1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt. Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál.
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur.
Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla.
Slökkvið á hrærivélinni. Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum.
Hrærið á kveikivélinni.
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni.
Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið.
Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.
Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. Smyrjið ofninn. Stillið kökuformið á 250°.
Gleymið ekki að hræra í stillaranum. Hendið skálinni út um gluggann. Athugið Grandið aftur.
Farið að sofa.
(Finnst ykkur ávaxtakökur hvort sem er góðar?).
knús & kram elzzzzkurnar/.
Nenni engu...
Knús og kram/.
jamm og já
En við erum búnar að gera ansi mikið um dagana, ég er búin að halda upp á afmæli fyrir Lísbet mína, það var gert fyrir viku síðan, þegar hún var búin að skella sér til Hafnarfjarðar til Gunnhildar frænku. það sem mér fannst alveg standa uppúr var þegar börnin fóru að týnast hér inn hvert á eftir öðru, þá voru tvö börn sem byrjuðu á því að tala um það hvað var gaman í afmælinu hennar Lísbetar þegar hún var 6. ára.. þá fórum við í leik þar sem við áttum að velja okkur föt upp úr poka þegar tónlistin stoppaði... já sagði ég, var það gaman ?? já! megum við fara í hann aftur...? !

Ekkert mál... !! Ég fór inn og týndi saman fullt af fötum af mér í ruslapoka, kjóla, náttkjóla, jakka, frakka, stuttbuxur, jólaveinahúfu, veski, belti, peysur og brjósthaldara sem sló svona rækilega í gegn... þvílík gleðilæti sem skríktu úr stofunni minni, það var alveg kostulegt... það þarf ekki mikið til að gleðja blessuð börnin... Við stefndum á að fara með eldri hópinn í krakkablakinu á íslandsmeistaramót í Reykjavík um síðustu helgi en vegna veðurs þurftum við að aflýsa því. Þvílíkur bömmer okkur var farið að hlakka svo til, en við gefumst ekki upp þó á móti blæs við ætlum að stefna á að fara á Akureyri í apríl á seinni helminginn á þessu móti....
Nú kveð ég að sinni kæru vinir á von á Lísbet og vinkonu hennar á hverri stundu, beint í flaututíma!
knús og kram/.
Hörfðu á björtu hliðarnar..
Við hjónin fengum alveg magnað afmælisboðskort í vikunni, Eyrún vinkona mín verður þrjátíu ára og ætlar að gefa sér tíma til að halda upp á það með pompi og prakt, það sem ég rak aftur á móti augun í var að það verður þema í gangi, allir að mæta í einhverju GRÆNU!! og ég sem á fullan fataskáp af allkonar lituðum fötum, á ekki neitt GRÆNT.. sagði henni að ég myndi bara búa mér til hálsmen, armband eða eitthvað þvíumlíkt og skrifa á það GRÆNT!

Fyndið þegar við sátum við matarborðið mæðgurnar einn morgunninn og vorum að háma í okkur morgunmatinn þá var krassblað á borðinu sem Jóhanna mín var að krota á, hún var að velta því fyrir sér hvernig hún ætti að skrifa nafnið sitt þegar hún yrði fræg.... muhahaha mér fannst það alveg snilld, hún á t.d sömu upphafsstafi og Jónsi í svörtum fötum J.J.S. en henni fannst það ekki alveg vera að virka kannski bara JÓNSA... hihi magnað að pæla í þessu núna 11. ára gömul!
Við vorum svo búnar að ákveða að halda upp á afmælið hennar Lísbetar minnar á sunnudaginn en Lísbet mín ætlar að fara með Hólmgeir til Hafnarfjarðar á morgun (föstudag) í afmæli til Þóru bestu vinkonu sinnar, segir að það sé svo skemmtilegt að fara til hennar í afmæli, Jóhanna reynir allt til að láta hana hætta við, langar svo að hafa hana heima, er búin að segja henni að hún sé búin að kaupa pakka og langi svo að láta hana hafa hann á afmælisdaginn....en Lísbet gefur sig ekki, ótrúlega ákveðin...ég get bara opnað hann núna!!
Jæja kæru vinir bið að heilsa ykkur í bili, munið að horfa á björtu hliðarnar,
knús og kram til ykkar allra/.
Brandari?
skyndilega.
-Ef ég myndi henda þúsund krónum út um gluggann, þá myndi ég gera eina
persónu glaða.
-Geir svarar og segir. Ef ég myndi henda 10-þúsund út um gluggann, þá myndi
ég gera 10 persónur glaða í dag.
-Flugstjórinn hlustar eftir þeirra tali og segir til þeirra. Ef ég myndi
henda ykkur báðum út af fluginu. Þá myndi ég gleðja heila þjóð!!!!
Smá pistill...
Nú er greinilegt að lífið er farið að ganga sinn vana gang.. ég sit hér og bíð eftir að Lísbet mín komin heim úr skólanum eða réttarasagt tónlistarskólanum hún fer beint þangað eftir skóla á fimmtudögum.. og í staðinn fyrir að ég setjist niður og læra aðeins í stærðfræði þá fer ég bara í tölvuna...
Við Kristín vinkona fórum í ræktina í gær að hreyfa á okkur skinkuna... sem er nú varla í frásögu færandi.. NEMA af því að ég glataði öllum geisladiskunum mínum í sumar og var svo viss um að einhver þjófur hefði stolið þeim úr bílnum mínum þegar ég hljóp Vesturgötuna... EN viti menn þegar ég kom inn í tækjasal þá var bara biblían mín þar, brosandi framan í mig og argaði nanananabúbú!!!!! það er greinilegt að ég er ekki mikið í íþróttahúsinu á sumrin... En þegar ég fer að hugsa aðeins lengra þá man ég eftir því að við notuðum græjurnar á Dýrafjarðadögum.. og þá var diskasafnið sótt út í bíl.... og ég biðst innilegrar afsökunar á því að hafa kallað einhvern þjóf, sem er ekki einu sinni þjófur, sagði það ekki við neinn, en var samt alveg viss um að það væri einhver þjófur, Svona getur maður verið gleyminn!! En mikið var ég ánægð að hafa fundið það

Ég er búnin að komast að þeirri niðurstöðu að ég er MJÖG léleg í stærðfræði... þvílíkt hvað ég sökka feitt þar maður... þvílík endemis vitleysa að láta mann læra svona flókna stærðfræði til að geta unnið á leikskóla... ætli ég verði ekki rekin með skít og skömm.... bæði úr stærðfræðinni og leikskólanum!!
En djö.. hvað ég hlakka til í kvöld, fæ að vera með í fótbolta.. hef ekki spilað bolta síðan á jólamótinu... EN nú er okkur stelpunum boðið að vera með á æfingum... það er nú ekki eins og við séum margar stelpurnar sem höfum brennandi áhuga eða nennum að mæta.. ég og Klara sem mætum.... jæja Lísbet komin, best að skella sér í lærdóminn með henni...
knús og kram á ykkur vinir/.
Fékk eitt stykki klukk frá Eyrúnu vinkonu...
það var ógó gaman á Krít með þessu skemmtilega hópi af föngulegum konum.. takk fyrir samveruna elskurnar... og takk fyrir hjálpina elsku Eyrún vinkona, alltaf til taks þegar á þarf að halda!! knús og kram/.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
o Sjoppan
o Byggingavinnu, smíðaði íþróttamiðstöðina :-)
o Frystihúsið
o Leikskólinn
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á
o La Bamba
o konungur ljónanna
o ávaxtakan
o Abba
Fjórir staðir sem ég hef búið á (ætti kannski að nefna staði sem ég hef EKKI búið á)
o Þingeyri
o Reykjavík á meðan ég var í skóla
o þá er það upptalið
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
o Despó
o Ally McBeal
o Sex and the sity
o singing bee
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
o Barcilona
o Portugal
o Litháen
o Krít
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
o Þingeyri.is
o mbl.is
o Facebook.com
o Tonlist.is
Fjórar bækur sem ég hef lesið
o Morðið í Alþingishúsinu ( á meðan ég var á Krít)
o Ég get séð um mig sjálf
o Víðsjál er vagga lífsins ( líka úti á Krít og í flugvélinni á leiðinni heim)
o Móðir í hjáverkum ( ekki alveg búin)
Fjórir bloggarar sem ég klukka
o
það eru engir eftir....

